Klukkan

Auglýsing

Bara nćstum ekkert eftir!!!

07. maí 2008 klukkan 14:29

Þá eru bara þrjú próf eftir og eiginlega bara tvö þar sem að ég fæ að taka eitt heima:D


En vá ég er að verða svo spennt fyrir því að fara heim og VERA heima! En ég er farin að finna það að ég á svolítið eftir að sakna Króksins og öllu fólkinu hérna..en það kemur annar vetur eftir þennan og það hittast allir aftur:P


Ég var semsagt í félagsfræðiprófi í gær og það gekk bara mjög vel að ég held skomm. Það var að minnsta kossti ekki neitt sem að ég algjörlega strandaði á. En ég bara vona það svo innilega að ég hafi náð þessu vegna þess að ég nenni alls ekki að taka þetta aftur. Prófin sem eru eftir er bara Enska og Íþróttafræði og ég þarf lítið sem ekkert að læra fyrir það þannig að ég er bara í chillinu þessa daga þar sem að þessi próf eru á föstudaginn. Ég er byrjuð að pakka og þyrfti eiginlega að halda áfram með það. Þetta er slatti af drasli sem ég er með hérna!


Já...í gær var ég bara að chilla með henni Heiðu minni:) Við fórum í Þreksport og skelltum okkur í ljós. Svo þurfti hún að fara og vera í miðasölunni hjá leikfélaginu og ég fór með henni í það. Vorum að rífa af miðum! GG gaman! (NOT) En svo fórum við bara upp á vist aftur og horfðum svo á video með Erlingi:P (Elli Blö) sem var bara ágætt sko. Einhver svaka góð mynd sem hann sagði að væri GEÐVEIK..sem var ekkert það spes nema seinasta atriðið! Þá grenjaði ég úr hlátri:') En svo horfðum við líka á Rockstar myndina sem er náttúrulega BARA GÓÐ!


En já..ég er hef lítið meira að segja! Ætla að fara að pakka eitthvað:P


Heyri í ykkur..Hildur:P

                                       
http://www.youtube.com/watch?v=I8akxHCUBLk


Þessi hljómsveit er að meikað það hjá mér þessa dagana!

                                        Avenged Sevenfold - Afterlife


Like walking into a dream, so unlike what you've seen
So unsure but it seems, ’cause we’ve been waiting for you
Fallen into this place, just giving you a small taste
Of your afterlife here so stay, you'll be back here soon anyway

I see a distant light, my girl this can't be right
Such a surreal place to see so how did this come to be
Arrived too early

And when I think of all the places I just don't belong
I've come to grips with life and realize this is going too far

I don't belong here, we gotta move on dear escape from this afterlife

’Cause this time I'm right to move on and on, far away from here

A place of hope and no pain, perfect skies with no rain
Can leave this place but refrain, ’cause we've been waiting for you
Fallen into this place, just giving you a small taste
Of your afterlife here so stay, you'll be back here soon anyway

This peace on earth's not right (with my back against the wall)
No pain or sign of time (I’m much too young to fall)
So out of place don't wanna stay, I feel wrong and that's my sign
I've made up my mind

Gave me your hand but realize I just wanna say goodbye
Please understand I have to leave and carry on my own life

I don't belong here, I gotta move on dear escape from this afterlife
’Cause this time I'm right to move on and on, far away from here
Got nothing against you and surely I'll miss you
This place full of peace and light, and I’d hope you might
Take me back inside when the time is right

Loved ones back home all crying ’cause they're already missing me
I pray by the grace of God that there's somebody listening
Give me a chance to be that person I wanna be
(I am unbroken; I’m choking on this ecstasy)
Oh Lord I'll try so hard but you gotta let go of me
(Unbreak me, unchain me, I need another chance to live)

I don't belong here, I gotta move on dear escape from this afterlife
’Cause this time I'm right to move on and on, far away from here
Got nothing against you and surely I'll miss you
This place full of peace and light, and I’d hope you might
Take me back inside when the time is right




Avenged Sevenfold








Jćja gott fólk!!:D

03. maí 2008 klukkan 20:43
Jæja núna er skólaárið senn á enda eftir steytumikla 8 MÁNUÐI!! Viljiði pæla! Mér finnst ég bara hafa komið hingað í gær sko.

En lokaprófin eru byrjuð en þau byrjuðu á föstudeginum. Þá fór ég í tvö próf, dönsku og sögu. Mér gekk bara mjög vel í dönskunni (as always) en í sögunni var ég gjörsamlega að ..... upp á bak!. En ég bara vona að ég rétt nái þessu og þurfi ekki að taka þennan áfanga aftur.

Í gær fór ég svo á 50 ára starfsafmæli Geirmundar:D haha það var bara mjög fínt. Sveiflukóngurinn alltaf í stuði. Svo var ball á eftir og ég fór heim svona rúmlega 2. Ingunn var eiginlega að syngja með honum uppá sviði allan tímann þannig að ég hafði fáa til að dansa við en það var allt í góðu.

En já. Svo er það bara vika eftir af þessu og maður þarf að fara að pakka niður bráðum. Sumarið er bara að taka við!! Vinna, sól og gaman:D:D Mamma og Nonni og þau koma að sækja mig um helgina. Þau koma á föstudaginn og við förum líklegast á sunnudaginn;D

En ég held bara að ég hafi lítið meira að segja. Kannksi ég farið bara að læra fyrir próf..eða horfa á ALLA LEIÐ:D:D

Heyri í ykkur:*

Hildur!


love

Elska þessa mynd!

Fleir myndir!!!

27. nóvember 2007 klukkan 21:39

Var að setja inn myndir úr lokapartýinu..blogga almennilega bráðu.

Núna eru að byrja prófin þannig að..ég sé til.

En er líka komin mei myspace

http://www.myspace/hildur_solm


Blessó í bili;D

Nýjar myndir!!!

15. nóvember 2007 klukkan 22:19
Jæja núna erum við búin að frumsýna en það var í gær. Svo var partý eftir það og ég var að skella myndum inn!!

Nenni ekki að skrifa meira.

Tékkið myndinrar:

KOMMEnT!!!

Hildur:D

Pikk, pikk, pikk, pikk!!

05. nóvember 2007 klukkan 16:53

Blogg...hvað er það...?

En já ég er eitthvað að letipúkast við þetta. En ég nenni bara sjaldan að blogga þar sem að það kíkja svo fáir inná hjá mér. En svo fór ég að hugsa..það náttúrulega kíkja svo fáir vegna þess að ég er aldrei að blogga!! AHA!!

En já ég er semsagt núna bara eitthvað að letipúkast hérna uppi á herbergi. Var búin í skólanum svona um þrjúleitið og hef ekki gert handtak síðan ég kom heim. Bara verið að nördast eitthvað í tölvunni. Reyna að setja upp myspace og svonna ;D

Það styttist alltaf í frumsýningu en hún verður 14. nóv. kl. átta held ég í sal FNV. Þetta verður hörkusjó og bið ég sem flesta að gera sér ferð og horfa á þennan merka söngleik í uppsettningu leikfélags FNV :Þ
Þetta er ekkert smá gaman að standa í þessu en ég hlakka samt alveg til þegar stússið verður búið. Þá fer maður að hafa tíma fyrir sjálfa sig á kvöldin og svona. Skella sér í sund eða út að labba eða hestbak eða bara eitthvað:D

Ég skellti mér á ballið þarna um seinustu helgi!! Það var svakalega gaman sko. Einmitt það sem mig vantaði, bara að fara og dansa gjörsamlega af mér fæturnar!! Sem að ég gerði..og Ingunn líka. Íris var svona örlítið valtari en við en...hihi;Þ

Svo á miðvikudaginn í seinustu viku var Menningarkvöld FNV. Það var mjög fínt, bodypaint keppni, Drag show keppni, tónlistaratriði og fleira. Þetta heppnaðist ágætlega og það sem mér fannst lang best voru Ívar og Elísa! En þau tóku þátt í dragshowinu sem Unnur Birna og Óli Geir. Þau voru satt að segja SNILLD!!! Enda í fyrsta sæti þar!! HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!! SNILLD!!
Ég veit ekki hvort að það koma myndir inná
www.nfnv.is þar sem að það hefur allt verið í einhverju messi..engar myndir komnar þannig að jámm.
 
Við Ingunn eigum ennþá eftir að skella okkur á Akureyri, það hefur bara alltaf eitthvað verið að gera og við erum alltaf á fullu þanngi að það hefur ekki gefist tími. En hver veit hvort að við förum næstu helgi..aldrei að vita hvað okkur dettur í hug stöllunum. En ég ætla kannski að gista hjá henni í nótt, Ebbi er eitthvað að fara suður og hún verður bara "home alone" og ég hefði ekkert á móti því að sofa einhverstaðar annarsstaðar en hér eina nótt..ekki það að þetta sé eitthvað slæmt. Bara svona tilbreyting.

En þá hef ég þetta ekki lengra í bili. Búin að blogga fyrir hana Berglindi mína;* Vonandi að hún geti komið einhverntímann hingað í sveitina:* Ennþá skemmtilegra ef bara allar stelpurnar mínar myndu skjóta upp kollinum hérna. Ég sakna þeirra svoooooooo mikið:'( :*:*:*

En þangað til næst píps:D

Hildur kveður.


Kominn tími á blogg!!

27. október 2007 klukkan 11:27

Það er aðeins of langt síðan ég bloggði síðast..er ég ekki að standa mig í þessu??
En það hefur bara verið slatti mikið að gera og ég ekki komist í það. Ég þurfti að fara suður aftur í sömu aðgerð og ég fór í í september um seinustu helgi. Þannig að þetta er fyrsta helgin mín í langan tíma sem að ég er hér.

En planið er að skella sér kannksi á ball á Blönduósi, er ekki alveg viss..en ég veit ekki hvernig ég myndi komast þangað. En Geirmundur er að spila og það er 16 ára þannig að mig langar geðveikt. Við Ingunn ætluðum að skella okkur á Akureyri en ákváðum að gera það um næstu helgi frekar. Þannig að já...

Ég hef svosem ekkert brjálað að segja. Ég ætla að reyna að vera dugleg við að læra um helgina...og svo að kíkja í einhverjar heimsóknir.

En þangað til næst...Hildur:D

Gott ađ fara heim!!

16. október 2007 klukkan 18:05

Hæhæ allesammen:D

Eins og fyrirsögning segir til um þá skellti ég mér heim um daginn! Ég fór á fimmtudegi suður með Elísu og Ívari og gisti hjá Lilju. Svo flaug ég vestur um morguninn á föstudeginum. Það var sko frjáls mæting á föstudeginum. En já ég var alveg búin að ákveða að fara heim þegar ég skrifaði seinasta blogg en málið var að ég ætlaði að koma stelpunum á óvart og mæta bara til þeirra í skólann þannig að ég vildi ekki skrifa það í bloggið :D Er ég ekki sneddí?!! En já á föstudeginum þá bara mætti ég í menntaskólann á ísó svona um tíu leitið og beið eftir því að stelpurnar kæmu úr tímum í frímínútur. Þær urðu allar alveg orðlausar þegar þær sáu mig og yfir sig ánægðar. Ohhh!! Það var svo gott að hitta þær loksins!!!;*;*

En ég var bara hjá þeim mest allan föstudaginn og við fórum í bakaríið og svonna. Svo kláruðu þær tímana sína og ég fékk bara að vera inni í herberginu hennar Steineyjar og ég meira að segja sofnaði næstum. Salvör var búin fyrr í skólanum en berglind og steiney þannig að við bara vorum á herberginu hennar steineyjar þangað til þær voru búnar. Þá fórum við og fengum okkur að borða í hamraborg og hittum þar Jóa frænda og Davíð og einhverja fleiri stráka. Þeir buðu okkur að koma á Jetsky!! Það var ekkert SMÁ gaman!!!!!!!!!!!!!! Ég væri svo til í að gera það aftur:D 
Mamma og Nonni og Hanna og Agnes komu svo á Ísó og ég fór HEIM með þeim. Vá hvað það var gott að vera heima! Sofa í rúmminu mínu og bara vera á Þingeyri! Mér leið ekkert smá vel. Svo um kvöldið á föstudeginum þá kíkkti ég á krakkana í félagsmiðstöðinni og það var voðalega næs. Salvör kom svo yfir og við vorum í singstar með Klöru..Fríða tók ekki mikið þátt:D;D Bara svona að rifja upp gamla og skemmtilega tíma:D

Svo bara var ég að slappa af og njóta þess að vera heima hjá mér um helgina. Á sunnudeginum flaug ég svo aftur suður og keyrði norður með Elísu og Ívar aftur. Við vorum að koma hingað heim svona um hálf ellefu leitið. En já eins og ég segi þá var ROSALEGA gott að komast aðeins heim!

En svo er ég að fara aftur suður á fimmtudaginn en ég þarf að fara aftur í þessa aðgerð af því að það klúðraðist eitthvað. En þá ætla ég að hitta Berglindi og Salvöru en þær verða fyrir sunnan. Við ætlum að fara í bíó og eitthvað skemmilegt. Ég vona bara að ég verði jafn góð eftir þessa aðgerð og ég var eftir hina.

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra..það er að koma matur:D
Þangað til næst, Hildur:D

Ein ógeðsleg af mér í restina:D



Franska + Danska!!!

08. október 2007 klukkan 20:23

Þá eru prófin byrjuð..eða þau byrjuðu náttúrulega á föstudaginn en ég byrjaði í dag. Ég var í dönsku fyrir hágdegi og svo í frönsku eftir hágdegi. Ég held að mér hafi bara gengið mjög vel. Ég vona bara að mér gangi ágætlega í næstu prófum. Ég er ekki í neinu prófi á morgunn en þarf samt að mæta í íþróttafræði af því að þar er ekki próf. En svo er ég í tveimur á mðvikudaginn, STÆ og ÍSL og svo á fimmtudaginn er ég í ENS og SAG.

Mig langar svo að fara heim!! Ég átti kannski að fara um næstu helgi en með Elísu og Ívari en þau ákváðu að fara suður í staðinn. Þannig að ég verð bara að finna mér eitthvað að gera hérna um helgina en það er sko löng helgi. Það átti að vera kennsla fyrstu tvo tímana á föstudeginum en það verður frjáls mæting og ég held að kennararnir ætti ekki einusinni að mæta.

En ég þarf eiginlega að fara að læra eitthvað í enskunni svo að ég verði búin með það áður en prófið verður en ég er búin að dragast svoldið aftur úr því að ég er í henni utanskóla og hef bara ekki haft tíma til að vinna í henni. En ég á ekkert svo mikið eftir þannig að þetta hefst alveg.

Ég fékk TVO pakka í dag. Og annar var svo stór að ég þurfti á fá Ingunni með mér niður á pósthús. En þeir voru frá pabba og hinn frá Salvöru. Pabbi var að senda mér núðlur og bollasúpur og morgunkorn og svona til að borða yfir helgarnar. En Salvör sendi mér svona síðbúin afmælsipakka með mynd af mér og henni og Berglindi og Steiney og svo geðveikt flotta eyrnalokka og PUMA bodylotion. Takk fyrir þetta sæta:*

En ég held að ég hafi þetta ekki lengra í bili.
Ykkar Hildur:D



Bloggirí...bloggirí!!

04. október 2007 klukkan 20:43
Jæja þá eru prófin bara að fara ð byrja. Þau byrja að vísu á morgunn en ég er ekki í neinu prófi á morgunn þannig að ég þarf bara að mæta í fyrsta tíma en það er lífsleikni. Svo ætla ég bara að nýta daginn í að læra fyrir prófin en ég er í sex prófum. Kannski samt bara fimm af því að ég veit ekki hvort að ég ætla að taka enskuna núna..er að spá í að geyma hana þangað til eftir áramót. Ég ætla bara að tala við Björn á morgunn um þetta.

En það sem ég er búin að vera af mér að gera síðustu daga er bara að sofa, fara í skólann, koma heim og læra, fara svo á leikæfingu og svo aftur að sofa. En það hefur bara alltaf verið alveg fullt að læra!!! Mér leið svo asnalega áðan..eða illa út af þessu öllu..og mörgu öðru sem var að brjótast í mér. En ég hringdi bara í hana elskulegu mömmu mína og hún huggaði mig og bjargaði deginum mínum eins og hún gerir alltaf. En þetta er ekkert auðvelt verk að komast í gegnum þetta ein. Það er svo margt að gera og varð líka svo stessuð af því að ég er ekki búin að ná að klára allt í enskunni eða er á eftir, og svo líka eitthvað í sögunni en samt ekkert sem að ég þarf að skila, bara til svona það sem kemur á prófinu og svona. Þannig að mamma sagði að ég þyrfti ekkert að taka enskuprófið núna af þvi að ég er í henni utanskóla og get alveg tekið það með lokaprófinu. En já þetta lagaðis allt og ég fór bara út að labba og í Skaffó að kaupa mér eitthvað í ísskápinn fyrir hlegina.

En svo er ég bara búin að vera að "chilla" og því að það er ekkert sem að ég ÞARF að gera fyrir morgundaginn en það er fullt sem að ég get lært en ég ætla ekkert að vera að því..nota bara helgina í það:D

En ég hef þetta ekki lengra í bili..

Ykkar Hildur:D

Til hamingju međ daginn pabbi!!!

29. september 2007 klukkan 18:03
Þá er kominn tími á að ég bloggi aðeins.
Ég nenni ekkert að skrifa mikið núna þar sem að ég er í Keflavík og það er pínu veisla í gangi niðri. En Pabbi minn er fertugur í dag!! Bryndís systir hennar Hafdísar á reyndar afmæli líka en hún verður ekki fertug fyrr en á næsta ári. Þannig að það var haldin pínu veisla..bara kaffi og kökur og svonna.
En ég veit ekki hvort að við ætlum að skella okkur í bíó á eftir..ég vona það eiginlega..langar svolidið í bíó.
En já ég var í heljarinnar aðgerð í gær og mér líður bara ótrúlega vel miðað við það. Ég er bara aðeins aum ennþá og sárið er viðkvæmt, þannig að ég þarf að passa hvað ég borða..að það sé ekki of hart og ekki of heitt. En ég get alveg borðað þannig sko..tygg bara öðru meginn. En ég er semsagt með GULLkeðju sem er föst í tönninni og út úr gómnum í spangirnar og svo fullt af saumum hér og þar. Ekkert gasalega fallegt né þægilegt. En ég lifi þetta svosem alveg af.
En ég fer aftur norður á morgunn..væri samt alveg til í að vera lengur hérna. :/

En hef þetta ekki lengra í bili...
Ykkar Hildur:D

Prófíll

  • Nafn: Hildur Sólmundsdóttir
  • Netfang: hildur91@internet.is
  • Stađur: Ţingeyri/Sauđárkrókur
  • Atvinna: Sjoppan í sumar:D
  • Hjúskaparstađa: Single;P
  • Um mig: Ég er 16 ađ verđa 17 og er í skóla á Króknum en er núna komin heim í sumarfrí:D:D

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvađ á ađ gera í sumar??

Innskráningar kubbur